Viðskipti erlent

Nei til EU samtökin norsku krefjast meiri aðstoðar til Íslands

Nei til EU samtökin í Noregi krefst þess að norsk stjónvöld veiti Íslendingum meiri aðstoð og segir í yfirlýsingu að það geti ekki þjónað hagsmunum Noregs að Ísland verði fátæktarland með velferðarkerfi sitt í molum.

Þetta kemur fram á vefsíðunni e24.no en Nei til Eu er eins og nafnið bendir til samtök gegn aðild Noregs að ESB. Samtökin sendu frá sér mjög harðorða yfirlýsingu um málið í gærdag þar sem segir að stoppa verði ruddaskap ESB landanna Bretlands og Hollands ásamt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í garð Íslands.

Fram kemur í yfirlýsingunni að Nei til Eu samtökin telji það sanngjarnt að almenningur á Íslandi fái að láta álit sitt í ljós í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave frumvarpið vegna þeirra víðtæku áhrifa sem frumvarpið hefur í för með sér fyrir þjóðina.

„Alþjóðasamfélagið verður að viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt Íslands og réttinn til að leita til dómstóla með málið," segir í yfirlýsingunni. „Bæði Alþingi og forsetinn segja skýrt að Ísland muni standa við skuldbindingar sínar."

Þá gerir Nei til EU þá kröfu til norskra stjórnvalda að efnahagsaðstoð frá Noregi megi ekki binda við óheyrilegar kröfur frá Bretlandi og Hollandi. „Þvert á móti ber Noregi að auka stuðning sinn við Íslendinga þar sem slíkt muni hjálpa nágrönnum í vanda," segir í yfirlýsingunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×