Viðskipti erlent

Kreppan dempar ekki ferðagleði Dana

Kreppan í Danmörklu hefur ekki náð að dempa ferðagleði almennings þar í landi. Nú er uppselt í nær allar sólarlandaferðir sem danskar ferðaskrifstofur bjóða upp á í ár.

Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að augljóst sé að Danir spari ekki við sig í ár þegar komi að sumarfríum þeirra. Stærstu ferðaskrifstofur landsins, Star Tour og Apollo segja að nær uppselt sé í allar þeirra sólarlandsferðir. Raunar hefur Apollo selt 100.000 slíkar í ár.

Skýringin á þessari ferðagleði Dana suður á bóginn liggur meðal annars í því að síðasti vetur var með eindæmum kaldur, snjóþungur og leiðinlegur að mati Dana.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×