Formúla 1

Webber: Frábært að vera fremstur

Fremstu menn á ráslínu, Sebastian Vettel, Mark Webber og Robert Kubica.
Fremstu menn á ráslínu, Sebastian Vettel, Mark Webber og Robert Kubica. Mynd: Getty Images

Mark Webber var að vonum anægður að hafa náð besta tíma í tímatökunni í Mónakó í dag. Hann ræsir af stað við hlið Robert Kubica sem var fremur hissa á að ná öðru sætinu.

"Það er frábært að vera á ráspól og liðið hefur unnið góða vinnu. Ráspóll í hverjum móti er gott fyrir okkur, liðið og Renault. Þetta eru hagstæð úrslit sem við verðum að nýta okkur á morgun", sagði Webber eftir keppni, samkvæmt frétt autosport.com.

"Við sáum hvað henti Fernando Alonso og við verðum að fullnýta það", sagði Webber, en Alonso komst ekki í tímatökuna eftir árekstur á æfingu og ræsir af þjónustusvæðinu í 24. sæti.

Webber vann síðustu keppni og er til alls líklegur.

"Bíll var hrein unun að keyra og stráknir hafa unnið sitt verk vel, þetta er liðsheild. Það eru Renault vélar í bílum í fremstu röð og hjartað slær hratt. Maður verður að vera nákvæmur við stýrið og ég er sáttur við mína stöðu."

"Ég mun vakna glaður í bragði á morgun, en keppnin er löng og brautin þröng og erfið vegna umferðar og hægfara bíla. Ég er bjartsýnn á góða keppni og liðið hefur fært okkur tækifæri til árangurs. En við fáum samkeppni", sagði Webber.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×