Viðskipti erlent

All Saints stígur með stíl úr íslensku rústunum

Þannig hljómar fyrirsögnin á Timesonline um ársuppgjör tískuverslanakeðjunnar All Saints fyrir síðasta reikningsár sem lauk í lok janúar s.l. Salan á vörum All Saints hefur rokið upp sem og hagnaður keðjunnar.

Alls Saints, sem stjórnað er af Kevin Stanford, sogaðist niður í hringiðu íslenska bankahrunsins haustið 2008 og litlu munaði að keðjan færi í gjaldþrotameðferð. Á síðasta ári jókst salan hinsvegar um 46% og í 113 milljónir punda. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 11 milljónum punda eða um 2 milljörðum kr.

Baugur átti 35% hlut í All Saints þegar bankahrunið skall á Íslandi haustið 2008. Í framhaldinu fékk keðjan ekki lengur eðlilega fyrirgreiðslu hjá birgjum sínum og varð að staðgreiða allar vörur. Staðan versnaði svo vegna lagadeilu milli Stanford og Kaupþings um hvort Stanford væri heimilt að afla nýs fjár með hlutafjáraukningu þar sem Kaupþing átti veð í hlutum Stanford vegna persónulegs láns til hans.

All Saints tókst að losa sig úr þessum íslensku flækjum með nýju láni frá Lloyds Banking Group og nú blómstrar reksturinn sem sjaldan fyrr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×