Viðskipti erlent

Nýir 100 dollara seðlar eyðilögðust í prentun

Svo virðist sem allt hafi farið úr skorðum þegar opinber seðlaprentverksmiðja hóf að prenta nýja 100 dollaraseðla í Bandaríkjunum. Eftir að búið var að prenta yfir milljarð dollara kom í ljós að seðlarnir voru gallaðir. Upplagið hefur verið keyrt í stórum körum til Forth Worth í Texas.

Sjónvarpsstöðin CNBC greinir frá þessu máli. Ætlunin var að prenta nýja 100 dollaraseðla fyrir um 110 milljarða dollara. Eftir að búið var að prenta 1,1 milljarð leiddi gæðaeftirlit í ljós að seðlarnir voru gallaðir. Þrátt fyrir að gallinn hafi ekki verið í öllum seðlunum var allt upplagið afturkallað. Gallinn sem um ræðir var lítill hvítur flötur á seðlunum sem ekki var gert ráð fyrir.

Þessi mistök eru ekki bara neyðarleg fyrir stjórnvöld í Bandaríkjunum heldur einnig fokdýr. Það kostaði um sex sent að prenta hvern 100 dollaraseðil af eldri gerðinni. Hinsvegar hafa endurbætur á seðlinum til að gera fölsun hans erfiðari gert það að verkum að hver seðill kostar nú 12 sent í prentun.

Fram kemur í frétt CNBC að verið sé að fara yfir allan prentferilinn og prentvélarnar til að finna út afhverju þessi galli kom fram. Á meðan liggur öll prentunin niðri.

Nýi 100 dollaraseðillinn var kynntur með pomp og prakt í apríl s.l. Hann átti að far í almenna notkun í bandaríska hagkerfinu í febrúar á næsta ári. Óljóst er hvort sú tímasetning stenst.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×