Viðskipti erlent

Sara stefnir i gjaldþrot

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sarah Ferguson stefnir í gjaldþrot. Mynd/ afp.
Sarah Ferguson stefnir í gjaldþrot. Mynd/ afp.
Skuldir Söru Ferguson, greifynju af York, nema næstum fimm milljónum sterlingspunda, eða sem nemur 940 milljónum íslenskra króna. Breska konungsfjölskyldan óttast að hún stefni í gjaldþrot.

Breska blaðið Sunday Telegraph segir að hið minnsta einn af helstu fjármálaráðgjöfum Buckingham hallarinnar hafi mælt með því að Sara lýsi yfir gjaldþroti jafnvel þótt þetta myndi valda drottningunni og fleiri úr konungsfjölskyldunni skömm. Drottningin er sögð hafa miklar áhyggjur af skuldunum sem eru næstum tvisvar sinnum meiri en áður var talið.

Talið er að drottningin hafi rætt vandamál Söru við David Cameron, forsætisráðherra Breta, en ekki er víst hvernig hann mun taka á málum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×