Formúla 1

Webber heppinn að ljúka keppni

Fremstu menn í gær. Sebastian Vettel, Fernando Alonso, Mark Webber og Aldo Costa hönnuður Ferrrari.
Fremstu menn í gær. Sebastian Vettel, Fernando Alonso, Mark Webber og Aldo Costa hönnuður Ferrrari. Mynd: Getty Images
Ástralinn Mark Webber er efstur í stigamóti Formúlu 1 ökumanna, eftir að hafa náð þriðja sæti í Singapúr í gær. Hann var fimmti á ráslínu og kænska Red Bull liðsins hans fleytti honum ofar. Hann lenti í árekstri við Lewis Hamilton, sem varð að hætta keppni. Sjálfur var Webber heppin að ljúka mótinu, þar sem það hékk á bláþræði eftir samstuðið að dekk losnaði af felgu. Svo segir yfirmaður Bridgestone í frétt á autosport.com í dag. Munaði 5 mm á því að dekkið flettist af, en það hékk á í 25 hringi. "Ég er ánægður með þriðja sætið, en þetta var mér erfið mótshelgi. Trúlega sú erfiðasta á árinu. Mér fannst ég ekki alveg í takti og er því ánægður með útkomuna", sagði Webber. Hann fór snemma í þjónustuhlé og missti marga bíla framúr sér, en vann sig upp listann af kappi. Hann lenti svo í samstuði við Hamilton, þegar Hamilton reyndi framúrakstur. "Lewis var aðeins á undan mér, en þetta er svipað og gerðist í síðustu keppni milli Felipe Massa og Lewis. Felipe vissi ekki af honum. Þetta getur gerst, því við bremsum á síðustu stundu fyrir beygjurnar. Vissulega var þetta tæpt, en skellurinn var ekki harður, en hefði getað stöðvað mig líka. En sem betur fer náði ég að halda áfram", sagði Webber. Hann er með 202 stig í stigamóti ökumanna þegar fjórum mótum er ólokið. Fernando Alonso er með 191, Hamilton 182, Sebastian Vettel 181 og Jenson Button 177.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×