Viðskipti erlent

Hættulegast í vinnunni milli klukkan 10 og 11 að morgni

Ný dönsk könnun sýnir að hættulegasta klukkustundin í vinnunni er á milli klukkan tíu og ellefu á morgnanna.

Könnun þessi var unnin af vinnueftirlitinu í Danmörku en samkvæmt henni verða flest vinnuslys á á þessum tíma dagsins eða 13%. Ef tímabilið frá klukkan tíu til hádegis er tekið saman verða um fjórðungur af öllum vinnuslysum í Danmörku á því tímabili.

Fjallað er um málið á viðskiptasíðu Berlingske Tidende en þar er haft eftir talsmanni Samtaka iðnaðarins í Danmörku að möguleg skýring á þessu sé að á þessu tímabili séu starfsmenn byrjaðir að huga að hádegisverðarhléi sínu og því ekki eins vakandi við það sem þeir eru að gera.

Einnig gæti spilað hér inn í að flestir almennir launþegar í Danmörku mæta í vinnu sína milli klukkan sex og sjö á morgnanna. Þeir hafa því yfirleitt farið á fætur um fimmleytið og eru því orðnir nokkuð þreyttir þegar líður að hádeginu.

Hinsvegar eru ekki til neinar opinberar rannsóknir á því afhverju flest vinnuslys í landinu verða á síðustu tveimur tímunum fyrir hádegi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×