Formúla 1

Hvorki hyglað að Alonso né Massa

Felipe Massa og Fernando Alonso bruna brekkurnar á ítölsku skíðasvæði og bruna Formúlu 1 brautirnar í sumar.
Felipe Massa og Fernando Alonso bruna brekkurnar á ítölsku skíðasvæði og bruna Formúlu 1 brautirnar í sumar. mynd: Getty Images



Stefano Domenicali hjá Ferrari segir að Fernando Alonso verði ekki tekinn fram yfir Felipe Massa, þó hann sé nýliði hjá Ferrari og tvöfaldur meistari. Bæði Alonso og Massa viti að Ferrari er númer eitt, svo ökumenn liðsins. Þeir verði að spila sitt hlutverk.

"Við erum með tvö harðskeytta og metnaðarfulla ökumenn sem vilja ná árangri. Þeir vilja báðir vinna og það er stíll Ferrari og við höfum okkar vinnureglur. Ég tek á þessum málum af yfirvegun og það vita allir sem ráða sig til Ferrari hvaða lögmál gilda hjá okkur", sagði Montezemolo.

Rétt er þó að geta þess að Michael Schumacher virtist alltaf vera í forgrunni þegar Rubens Barrichello ók hjá liðinu. Barrichello gat þess þegar hann hætti hjá liðinu.

"Raikkönen og Massa studdu hvor annan, sitt hvort árið sem þeir voru að berjast um titilinn. Það bar merki um virðingu. Núna blása ferskir vindar innan Ferrari og andrúmsloftið er rafmagnað", sagði Domenicali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×