Einfaldur og vinsæll eftirréttur: Engiferís með súkkulaðispæni 22. desember 2010 06:00 Eva Einarsdóttir er sannkallaður ástríðukokkur. Vísir/Stefán
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta flokksins, er nú í fæðingarorlofi en segist hafa nóg fyrir stafni og er auk þess spennt fyrir að snúa aftur til starfa. Eva hefur gaman af því að laga mat og er dugleg að halda matarboð. Einnig heldur hún úti eigin matarbloggi á vefsíðunni midjan.is. Hún kveðst hafa ákveðið að deila uppskrift að eftirrétti með lesendum eftir svolitla umhugsun, enda betur að sér í gerð aðalrétta að eigin sögn. Eftir að hún ákvað að slá til byrjaði hún á að gramsa aðeins í uppskriftarbókunum og valdi að lokum einfaldan ís. „Úr varð að ég valdi þann eftirrétt sem ég hef oftast gert og er ofureinfaldur. Þennan góða ís fékk ég fyrst hjá Hólmfríði Önnu Baldursdóttur fyrir nokkrum árum. Þá hélt hún árshátíð starfsmanna Unicef heima hjá sér, en ég var í starfsnámi þar. Mér fannst ísinn hið mesta sælgæti og síðan þá hef ég gert hann mjög oft og hann fellur alltaf vel í kramið hjá fólki." Sérgrein Evu er ljúffengir og hollir aðalréttir en hér sýnir hún á sér nýja hlið með uppskrift að einföldum og góðum engiferís.Vísir/Stefán Spurð um matarhefðir á jólunum segir Eva hnetusteik og möndlugraut vera á borðum hjá hennar fjölskyldu á aðfangadagskvöld. „Við hjónin borðum yfirleitt hnetusteik á jólunum, þar sem við erum grænmetisætur. En á gamlárskvöld borðum við grænmetishleif, innbakaðan í smjördegi, og heimalagaðan ís sem tengdamóðir mín lagar svo snilldarlega.“ Engiferís með súkkulaðispæni 1 l vanilluís 2-4 bitar af sultuðum engifer 1 poki dökkur súkkulaðispænir eða 1-2 plötur af góðu dökku súkkulaði sem búið er að mylja niður Skellið þessu öllu í matvinnsluvél og hrærið í smá stund, þangað til allt hefur blandast vel saman. Fólk þarf í rauninni að prófa sig áfram, bæði með engiferinn og súkkulaðið. Látið í skálar, stráið smá súkkulaði yfir sem haldið var til haga og skreytið til dæmis með blæjuberi eða stjörnuávexti. Hægt er að búa ísinn til með góðum fyrirvara og geyma hann í frysti.
Eftirréttir Ís Jól Jólamatur Uppskriftir Mest lesið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Lífið samstarf „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Allt það helsta frá Ungfrú Ísland Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Lífið Fleiri fréttir Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Sjá meira