Formúla 1

McLaren frumsýndi nýtt ökutæki

Nýi McLaren fákurinn er vígalegur.
Nýi McLaren fákurinn er vígalegur.

"Ég er ótrúlega stoltur að standa við nýja bílinn, vitandi að ég verð með rásnúmer eitt á bílnum. Það er mikil ábyrgð og mikill heiður. Nokkuð sem ég hlakka til. Nú er málið að læra á bílinn og þróunarvinnan á næstu vikum gæti ráðið miklu um úrslitin í mótinu", sagði mestarinn Button.

Hamilton er líka fullur eldmóðs fyrir tímabilið og varð meistari fyrir tveimur árum með McLaren.

"Ég er búinn að sjá hvað mikil vinna hefur farið í bílinn og við höfum unnið brjálæðislega í að hann skili sem mestu. Við Button erum báðir meistarar og viljum bæta við sögu liðsins og titlanna. Það er mjög mikilvægt að hafa sterkt ökumannsteymi og það verða margir samkeppnishæfir ökumenn. Því betri sem við erum, þess meiri möguleiki að við stöndum okkur", sagði Hamilton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×