Bakþankar

Mikilvægi stuðsins

Þótt það blasi nú kannski ekki við, þá legg ég mikla áherslu á það að vera í stuði. Og ég er í mestu stuði ef ég fíla mig bæði hipp og kúl. Líði mér hvorki hipp né kúl þyrmir yfir mig þungbúið óöryggi og deyfð - já, almennt bara helvítis aumingjaskapur. Best er að vera í svo góðu stuði að maður spretti upp á morgnana, lagi sér rótsterkt kaffi og haldist í stuði fram á kvöld. Þannig er best að vera til. Þegar ekkert bítur á mann. Þegar maður getur hnarreistur starað framan í fólk fullur sjálfsöryggis og mikilfengleika. Nagli. Efnagrauturinn í heilanum í ofurjafnvægi. Maður kannski komandi úr ræktinni eins og bólgnar æðar sem slá af alefli á enninu bera fagurt vitni. Blastar FM í botn á fjölskyldubílnum og misskilur glott á gellu í næsta bíl. Þá líður manni eins og maður verði aldrei gamalmenni og hvað þá hrikalega ókúl lík.

Nú eru erfiðir tímar í stuðinu. Ég sprett sjaldan á fætur, ligg bara eins og ræfill og kuðla sængina í heillöngum svefnrofunum þar til ég er næstum því orðinn of seinn. Ég held þetta sé skamm­degið, vona það allavega. Nenni ekki að vera svona endalaust. Ég náði botninum nýlega þegar ég fór að haltra upp úr þurru. Held ég hafi tognað í svefni - hversu glatað er það? Við heltið bættist hljóð í öðrum skónum. Hittist þannig á að það var komið risagat á sólann þar sem gutlaði vatn af götunni. Í hverju skrefi heyrðist eins og verið væri að stinga fingri í fulla sultukrukku. Haltur með aumingjahljóð. Það er langt síðan mér hefur liðið jafn lítið kúl.

Þetta átakanlega ekki-töff-ástand lagaðist fljótlega með nýjum skóm. Mér leið stórkostlega þegar ég hætti smám saman að vera haltur. Með hækkandi sól sé ég svo fram á enn meira stuð. Ég nenni ekki öðru en að vera bjartsýnn. Já, já, þetta endar allt á einn veg, en fjandinn hafi að ég velti mér upp úr því endalaust.

Maður verður að hafa framtíðarsýn. Á fimmtugsafmælisárinu sé ég mig blasta FM í fíkniefnasalasvörtum Ford Mustang. Ég hef náð mér í töff brúnku á heimsreisunni. Ég er langt undir kjörþyngd og það er löngu búið að leysa Icesave. Dúndur góðæri er komið aftur og þegar ég keyri fram hjá Hörpu á Hafnarbakkanum blasir við risaauglýsing fyrir tónleikana mína í kvöld. Það er auðvitað löngu uppselt.






×