Birgir Leifur bætti sig um 7 högg en staða hans er vonlítil Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 6. desember 2010 15:37 Birgir Leifur Hafþórsson hefur alls ekki náð sér á strik á úrtökumótinu á Spáni. Mynd/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG lék á 73 höggum í dag eða 3 höggum yfir pari á öðrum keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir bætti sig um 7 högg frá því á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 80 höggum Staða hans er vonlítil og litlar líkur á því að hann komist í hóp 30 efstu sem tryggja sér keppnisrétt á næsta tímabili. Íslandsmeistarinn er samtals á 11 höggum yfir pari og er hann í þriðja neðsta sæti af alls 157 kylfingum. Birgir fékk þrjá fugla (-1) á hringnum í dag, fjóra skolla (+1) og einn skramba (+2). Hann leikur á morgun á Stadium vellinum þar sem hann lék á fyrsta keppnisdeginum og á fjórða hringnum leikur hann á sama velli og í dag, Tour vellinum á PGA golfsvæðinu í Katalóníu.
Golf Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Fleiri fréttir Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira