Viðskipti erlent

Ný ofurtölva frá IBM keppir í spurningaleiknum Jeopardy

Ný ofurtölva sem IBM hefur smíðað mun keppa við tvo einstaklinga í hinum geysivinsæla spurningaþætti Jeopardy eða Háskaleik í bandaríska sjónvarpinu.

Tölva þessi hefur hlotið nafnið Watson í höfuðið á Thomas J Watson stofnenda IBM og er það nýjasta í heiminum á sviði gervigreindar. Þar að auki er tölvan með nýju forriti sem gerir henni kleyft að skilja mælt mál þannig að hvorki þarf lyklaborð né snertiskjá til að eiga samskipti við hana.

Dr. David Ferrucci yfirmaður vísindadeildar IBM segir að þátttaka Watson í Háskaleik sé mesta áskorun sem hægt sé að finna fyrir tölvuna því árangur í spurningakeppninni byggi öðru fremur á útsjónarsemi og ályktunarhæfni auk hæfileikans til að lesa rétt í glettnar gátur.

Einstaklingarnir tveir sem Watson keppir við eru engin aukvisar þegar kemur að spurningakeppnum. Annar þeirra hefur unnið 74 Háskaleikskeppnir í röð og hinn hefur unnið mesta verðlaunafé í sögu keppninnar. Í boði eru milljón dollarar í verðlaun.

Þess má svo geta að önnur ofurtölva IBM. Deep Blue, vann eitt sinn heimsmeistarann fyrrverandi Garry Kasparov í skák.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×