Viðskipti erlent

Frakkar biðja Parísarklúbbinn að fella niður skuldir Haití

Frönsk stjórnvöld hafa farið fram á það við Parísarklúbbinn að allar erlendar skuldir Haití verði felldar niður. Sjálfir hafa Frakkar fellt niður skuldir Haití þar í landi.

Skuldirnar sem Frakkar felldu niður nema um 700 milljónum kr. en eftir standa skuldir Haití hjá öðrum löndum Parísarklúbbsins upp á um 9 milljarða kr.

Christine Lagarde efnahagsmálaráðherra Frakklands segir að hamfarirnar á Haití geri það nauðsynlegt að erlendar skuldir landsins séu sléttaðar út að því er segir í frétt um málið á vefsíðunni e24.no.

Í júlí á síðasta ári komst Parísarklúbburinn að samkomulagi við kröfuhafa Haití um verulega niðurfellingu á skuldum landsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×