Ánægður með Íslendingana 22. október 2010 14:00 í ró og næði Dermot Mulroney og Diane Kruger ásamt framleiðendum Inhale, þeim Jennifer Kelly og Nathalie Marciano. Þau horfðu á myndina í ró og næði á ótilgreindu heimili í Beverly Hills.NordicPhotos/Getty
Dermot Mulroney, aðalleikari Inhale, hrósar þeim Óttari Guðnasyni og Baltasar Kormáki fyrir vinnu þeirra. Myndin fær frábæra dóma í Hollywood Reporter. Á meðan leikstjórinn Baltasar Kormákur og Óttar Guðnason sátu í stóra sal Háskólabíós með sínu fólki á sunnudagskvöld og horfðu á Inhale komu þau Dermot Mulroney og Diane Kruger, aðalleikarar myndarinnar, sér vel fyrir á einkaheimili í Beverly Hills og horfðu á myndina í ró og næði. Með þeim voru meðal annars framleiðendur Inhale, þær Jennifer Kelly og Nathalie Marciano. Mulroney, þekktastur fyrir aukahlutverk í kvikmyndum á borð við My Best Friend‘s Wedding, About Schmidt og Zodiac, er í ítarlegum viðtölum við bæði Collider.com og Los Angeles Times og ræðir þar meðal annars samstarfið við Baltasar og Óttar og ekki síst mótleikara sinn, leikritaskáldið og goðsögnina Sam Shepard. Sem, ef marka má orð Mulroneys, er ekkert alltof auðveldur í samstarfi. „Ég hef unnið nokkrum sinnum með Sam, lék meðal annars son hans í kvikmynd frá árinu 1986 og svo gerðum við aðra mynd tíu árum seinna og eitthvað í leikhúsi líka. Og ég get alveg sagt að Sam er aldrei neitt sérstaklega viðkunnanlegur og hann er frekar ógnandi við fyrstu kynni. Ég meina, Baltasar Kormákur, er mikill maður, myndarlegur með kraftmikla nærveru og jafnvel hann varð lítill við hliðina á Sam,“ segir Mulroney í samtali við Collider. Mulroney hrósar hins vegar þeim Baltasar og Óttar Guðnasyni tökumanni fyrir þeirra vinnu í Los Angeles Times. „Hvernig þeim tókst að breyta Las Vegas í mexíkóska bæinn Juarez var alveg ótrúlegt og það var skemmtilegt að vinna við mynd með íslenskum kvikmyndagerðarmönnum, þýskri aðalleikkonu, amerískum aðalleikara og frönskum og spænskum aukaleikurum,“ segir Mulroney í samtali við Los Angeles Times. Inhale fær fjórar stjörnur í Fréttablaðinu í dag og gagnrýnandi Hollywood Reporter, Kirk Honeycutt, var einnig yfir sig hrifinn og nefnir sérstaklega: „stórkostlega frammistöðu Dermots Mulroney,“ eins og það er orðað. Í niðurstöðu dómsins segir að Inhale sé vel skrifaður tryllir en áhorfendum gæti liðið illa vegna þeirra siðferðilegu spurninga um ólöglega líffærasölu sem kvikmyndin spyr. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Menning Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira