Lífið

Hjúskaparmiðlarinn Gwyneth Paltrow

Staðfestir sambandið Gwyneth Paltrow segir að hún og maður hennar eigi heiðurinn af sambandi Jakes Gyllenhaal og Taylor Swift, til vinstri.
Staðfestir sambandið Gwyneth Paltrow segir að hún og maður hennar eigi heiðurinn af sambandi Jakes Gyllenhaal og Taylor Swift, til vinstri.

Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur eignað sér heiðurinn að sambandi kántrísöngkonunnar Taylor Swift og leikarans Jake Gyllenhaal. Hvorugt hefur staðfest sambandið til þessa en parið á að hafa kynnst í matarboði hjá Paltrow og manni hennar Chris Martin.

„Ég hef þekkt Gyllenhaal lengi og hef mikið álit á honum og Chris þekkir Swift og okkur finnst þau passa mjög vel saman," segir Paltrow um meint samband en níu ára aldurmsunur er í sambandinu.

Gyllenhaal hefur verið einn af heitari piparsveinum í Hollywood og til að mynda verið í sambandi með leikkonunum Reese Witherspoon og Kirsten Dunst.

Segir ekkert Taylor Swift vill ekkert gefa upp um samband sitt við Jake Gyllenhaal.











Fleiri fréttir

Sjá meira


×