Formúla 1

Schumacher æfir á Spáni

Schumacher á fullri ferð á GP 2 bíl á Jerez brauitnni í dag.
Schumacher á fullri ferð á GP 2 bíl á Jerez brauitnni í dag. mynd: Getty Images

Michael Schumacher sprettir úr spori á GP 2 keppnisbíl í dag á Jerez brautinni á Spáni og verður þar tvo daga í viðbót.

Schumacher ekur fyrir Mercedes á þessu ári ásamt Nico Rosberg og æfingin á Jerez er til að koma honum í takt við kappakstrsbíla af stærri gerðinni, en til þessa hefur hann mest verið að stýra kartbílum.

Mikill áhugi er um allan heim á endurkomu Schumachers og sama má segja hérlendis, þar sem gamlir Schumacher aðdáendur hafa vaknað til lífsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×