Fótbolti

Bjarni Þór: Mikilvægast að ég spili reglulega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarni í leik með U21 árs landsliði Íslands.
Bjarni í leik með U21 árs landsliði Íslands. GettyImages
Bjarni Þór Viðarsson gekk í gær til liðs við belgíska úrvalsdeildarfélagið KV Mechelen og skrifaði undir þriggja ára samning. Hann lék síðast með KSV Roeselare sem féll úr sömu deild nú í vor.

„Ég er mjög ánægður með þessa lendingu enda félag sem býr við stöðugleika og ætlar að reyna að bæta árangur síðasta tímabils," sagði Bjarni en Mechelen hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar og var hársbreidd frá því að komast í Evrópudeild UEFA. „Þar að auki er þetta gamalt stórveldi hér í Belgíu," bætti hann við.

Bjarna stóðu fleiri möguleikar til boða en hann ákvað að vera um kyrrt í Belgíu. „Ég talaði við önnur lið og það var líka einhver áhugi frá Þýskalandi. En ég vil vera hér áfram í 2-3 ár og ef vel gengur og mér tekst að skora einhver mörk þá verður eflaust fylgst vel með manni," sagði hann.

„Það mikilvægasta er að ég fái áfram að spila reglulega. Ég fékk mikið að spila í Roeselare og það borgaði sig. Það hefði lítið gert fyrir mig að vera áfram í Twente og sitja bara á bekknum þar," sagði Bjarni en hann var áður á mála hjá Twente í Hollandi.

„Ég tel að þetta sé rétt skref fyrir mig. Mér líst mjög vel á félagið og það sem þjálfarinn hafði fram að færa. Mechelen var óheppið að komast ekki í Evrópukeppnina nú og það verður markmið næsta tímabils. Liðið var svo í úrslitum bikarkeppninnar í fyrra og í undanúrslitunum nú í ár."

Bjarni á að baki einn leik með A-landsliði Íslands en alls 50 leiki með yngri landsliðum. Í þeim skoraði hann sextán mörk. Hann hóf atvinnumannsferilinn hjá Everton í Englandi en fór þaðan til Hollands árið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×