Viðskipti erlent

Humarútgerðir í Kanada í vanda vegna verðhruns

Humarútgerðir í Kanada eru nú í vanda vegna verðhruns á humar þar í landi og Bandaríkjunum. Er humarinn nú nær tvöfalt verðminni en hann var árið 2007. Það er minnkandi eftirspurn sem veldur verðlækkunum.

Í frétt um málið á Financial Times segir að ofan á þennan vanda bætist svo lánsfjárskortur í framhaldi af því að íslensku bankarnir hrundu haustið 2008. Þeir voru umfangsmiklir í lánveitingum til sjávarútvegsfyrirtækja í Kanda.

Verð á humri hefur lækkað svo mikið á undanförnum tveimur árum að jafnvel veitingahúsakeðjur hafa bætt humri á matseðil sinn. Financial Times bendir á Ruby Tuesday sem dæmi en sú keðja rekur 850 veitingahús í Bandaríkjunum.

Verslunarkeðjur eru einnig með humar á hagstæðum verðum. Sem dæmi er tekin Hannaford Supermarkets í New England sem nú býður upp á humar fyrir 4,99 dollara á pundið. Þetta er tvöfalt lægra verð en í boði er fyrir lúðuna í sömu verslun.

Kanadískar humarútgerðir og vinnslur eru með um 30.000 manns í vinnu og veltan í greininni nemur tæpum milljarði dollara á ári, eða um 125 milljörðum kr. Á síðasta ári hefur hinvegar verið nokkuð um að útgerðir hafi hætt veiðum vegna hins lága verðs.

Gatið sem myndaðist við hrun íslensku bankanna hefur verið fyllt af fjármálastofnunum eins og GE Capital og þróunarsjóði á vegum kanadískra stjórnvalda. Þá hvatti Bank of Montreal, sem er stór lánadrottinn humarútgerða á austurströnd Kanada, alla landsmenn að gera humar að áramótamáltíð sinni um þessi áramót, að því er segir í Financial Times.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×