Formúla 1

Mercedes setur stefnuna á 2011

Michael Schumacher og Nico Rosberg hefur ekki gengið sérlega vel á bíl þessa árs hjá Mercedes.
Michael Schumacher og Nico Rosberg hefur ekki gengið sérlega vel á bíl þessa árs hjá Mercedes. Mynd: Getty Images
Lið Mercedes í Formúlu 1 með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg innanborðs ætlar ap setja meiri kraft í hönnun bíls næsta árs, heldur en framþróun 2010 bílsins. Þetta sagði Ross Brawn í frétt á autosport.com. Öll keppnislið eru í sumarfríi þessa dagana, en næsta mót er í lok mánaðarins á Spa brautinni í Belgíu. Mercedes mun mæta með einhverjar nýjungar í mót sem verður í Singapúr í haust, en aðal áherslan verður lögð á vinnu við bíl næsta árs, þar sem núverandi bíll hefur ekki reynst eins vel og til stóð. "Við viljum taka eitt skref fyrir lok ársins og markmiðið er að það verði fyrir Singpúr mótið", sagði Brawn. "Það voru nýjar reglur settar fyrir þetta ár, sem þýddu að bensínáfylling var ekki leyfð og við hittum ekki naglann á höfuðið með bílinn, þannig að við munum ekki setja mikið meira fjármagn í þróun. Við vitum hvað við þurfum að gera fyrir næsta ár og leggjum mestan þunga á það", sagði Brawn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×