Formúla 1

Ecclestone: Engin krísa í Formúlu 1

Fernandi Alonso á leið til sigurs í mótinu í Barein í gær.
Fernandi Alonso á leið til sigurs í mótinu í Barein í gær. mynd: Getty Images
Bernie Ecclestone segir að ekki sé ástæða til að örvænta þó Formúlu 1 mótið í Barein hafi ekki staðiði undir væntingum. Það þótti einsleitt og heldur tilþrifalítið, eftir að reglur um búnað og fleiri áttu að seja meira fjör í leikinn.

"Það er engin að örvænta og engin krísa í Formúlu 1. Við skulum skoða stöðuna eftir fyrstu mótin og sjá hvernig liðin aðlagast nýjum aðstæðum. Fyrsta mótið með nýjum reglum er alltaf líklegt til að vera lærdómur fyrir liðin. Núna geta menn lagt á ráðin og verið áræðnari."

"Kannski er málið að liðin fái aðeins mjúk dekk og þurfi þess vegna að skipta í tvígang, í stað þess að hafa tvö afbrigði af dekkjum. Helsta vandamálið er að menn eiga erfitt með að komast nálægt andstæðingnum útaf loftflæðinu yfir yfirbyggingarnar. Liðin vita þetta en vilja ekkert gera, því það er þeirra hagur að vinna. Ég hitti liðsmenn að máli og mun útskýra að við þurfum að sinna og skemmta almenningi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×