Viðskipti erlent

FIH bankinn eykur væntingar um hagnað ársins

FIH bankinn í Danmörku, sem er í íslenskri eigu, hefur aukið við væntingar sínar um hagnaðinn á þessu ári. Nú gerir bankinn ráð fyrir að hagnaðurinn nemi 450 milljónum danskra kr. eða rúmlega níu milljarða kr. eftir skatta.

FIH bankinn hefur skilað uppgjöri fyrir annan ársfjórðung en hagnaður bankans á því tímabili nam 102 milljónum danskra kr. fyrir skatta eða rúmlega 2,1 milljarði kr. Til samanburðar var hagnaðurinn aðeins 24 milljónum danskra kr. á sama tímabili í fyrra.

Hinn góði árangur í ár er einkum vegna þess hve dregið hefur úr afskriftaþörf bankans á slæmum lánum. Afskriftirnar námu 188,5 milljónum danskra kr. á ársfjórðungnum sem er helmingi lægri upphæð en á sama tímabili í fyrra.

Áður hafði FIH bankinn reiknað með að hagnaðurinn eftir árið yrði 400 milljónir danskra kr. eftir skatta en nú hefur sú upphæð verið hækkuð um 50 milljónir danskra kr.

Hans Skov Christensen stjórnarformaður FIH segir að uppgjörið sé ásættanlegt fyrir stjórn bankans.

FIH bankinn er alfarið í eigu skilanefndar Kaupþings en Seðlabanki Íslands á einnig mikilla hagsmuna að gæta þar sem hann heldur á allsherjarveði í bankanum upp á 500 milljónir evra fyrir láni sem veitt var Kaupþingi korteri fyrir hrunið haustið 2008.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×