Formúla 1

Rosberg: Schumacher verður betri

Michael Schumacher hefur staðið í skugga Nico Rosberg sem er í öðri sæti í stigamóti ökumanna,.
Michael Schumacher hefur staðið í skugga Nico Rosberg sem er í öðri sæti í stigamóti ökumanna,. mynd: Getty Images
Nico Rosberg hefur náð mun betri árangur en liðsfélaginn Michael Schumacher hjá Mercedes á árinu. Hann segir þó í samtali við Gazette dello Sport að Schumacher eigi eftir að verða betri. Rosberg hefur bæði staðið sig betur í tímatökum og í keppni og er í öðru sæti í stigamótinu á meðan Schumacher er níundi. "Ég er ánægður að vera á undan Schumacher, en ég veit ekki hve lengi það mun endast. Ég hefði trúlega verið sáttur að vera í hans stöðu, en núna vonast ég til að geta barist við hann áfram", sagði Rosberg við ítalska miðilinn. Þetta kemur fram á vefsíðu autosport.com í dag. Rosberg segist hafa gaman að samstarfinu við Schumacher, en Schumacher er mjög tæknilega sinnaður og hefur gaman af allri undirbúningsvinnunni fyrir kappakstursmótin. "Fólk gerir sér rangar hugmyndir um Schumacher og ég taldi sjálfur að það yrði ekki gott að fá hann sem liðsfélaga, en ég hef verið hissa á hve jákvætt allt hefur verið", sagði Rosberg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×