Viðskipti erlent

Næstum hundrað bankar á hliðina

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum hefur tekið 78 banka yfir á árinu.
Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum hefur tekið 78 banka yfir á árinu. Markaðurinn/AFP

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC) tók yfir fimm banka um síðustu helgi. Þrír þeirra eru í Flórída, einn í Nevada og annar í Kaliforníu. Bankarnir höfðu lánað mikið til íbúðakaupa og fóru því illa út úr hruni á fasteignamarkaðinum.

Tryggingasjóðurinn tók yfir rúmlega 140 banka vestanhafs í fyrra og hefur það sem af er ári þurft að grípa inn í rekstur 78 til viðbótar. Þar af eru þret-tán þeirra sem sjóðurinn tók yfir í ár í Flórída, en þar var mesta hrunið á fasteignamarkaði. Þá eru sex þeirra í Kaliforníu og tveir í Nevada. Þeir fengu aðvörun frá fjármálayfirvöldum vestra vegna slæmrar fjárhagsstöðu.

Sheila Bair, forstjóri FDIC, sagði í samtali við Bloomberg-fréttastofuna um helgina, að á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi 778 bankar í Bandaríkjunum átt í fjárhagsvandræðum. Búist er við að fleiri bankar fari á hliðina og verði hámarkinu náð síðar á árinu.

Svipuðu máli gegnir um bankana fimm og aðra banka sem FDIC hefur tekið yfir en keppinautar keyptu þá nær samstundis í því augnamiði að víkka starfsemi sína út.

- jab








Fleiri fréttir

Sjá meira


×