Viðskipti erlent

Dr. Doom: Grikkland á leið þráðbeint í gjaldþrot

Roubini segir að björgunaráætlun fyrir Grikklandi muni ekki virka af því að „Grikkland er við það að komast í greiðsluþrot".
Roubini segir að björgunaráætlun fyrir Grikklandi muni ekki virka af því að „Grikkland er við það að komast í greiðsluþrot".
Hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, auknefndur dr. Doom, segir að Grikkland sé nú á leið þráðbeint í gjaldþrot. Þetta kom fram í máli Roubini í viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina í gærkvöldi.

Roubini segir að björgunaráætlun fyrir Grikklandi muni ekki virka af því að „Grikkland er við það að komast í greiðsluþrot". Hann efast ekki um að endurskipulagning á skuldum landsins sé nauðsynleg.

Slík endurskipulagning myndi síðan hrinda af stað eyðileggjandi dómínó-áhrifum vegna hins gífurlega taps hjá fjárfestum sem slíkt hefði í för með sér og breiða skuldakreppuna út til landa á borð við Portúgal, Spán, Írland og Ítalíu. Hvað þetta varðar sé Grikkland aðeins toppurinn á ísjakanum.

Auknefni sitt hlaut Roubini í framhaldi af því að hann spáði fyrir um kreppuna árið 2007 ári áður en hún skall á heimsbyrggðina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×