Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á áli rýkur upp

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað töluvert í þessum mánuði og stendur nú í 2.315 dollurum fyrir tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga.

Í upphafi mánaðarins stóð verðið í rétt tæpum 2.100 dollurum á tonnið og hefur því hækkað um 10% síðan þá.

Lægst fór verðið á álinu í sumar í rúmlega 1.850 dollara um miðjan júnímánuð. Frá þeim tíma hefur það því hækkað um 30%.

Þessar hækkanir eru í takt við hækkanir á annarri hrávöru að undanförnu sem og málmum.

Eins og kunnugt er af fréttum hefur verð á gulli aldrei verið hærra og verð á silfri hefur ekki verið hærra í 30 ár. Þróun á gengi dollarans spilar hér einnig inn í en dollarinn hefur ekki verið veikari gagnvart evru í fjóra mánuði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×