Formúla 1

FIA heimtar breytingu á toppbílum

McLaren og fleiri lið þurfa að skoða bíla sína fyrir næsta mót.
McLaren og fleiri lið þurfa að skoða bíla sína fyrir næsta mót. mynd: Getty Images

FIA hefur sent tilmæli til allra keppnisliða varðandi búnað keppnisbíla,

sem kallast loftdreifir og er aftan á bílunum.

Búnaðurinn hjálpar til við að soga bílinn að jörðinni og nokkur

lið, m.a. Mercedes og McLaren eru sögð vera með búnað sem sé gegn anda

reglanna. Sérstök göt fyrir ræsimótor eru sögð of stór og skapa óþarflega hagstætt loftflæði.

Því hefur FIA bent keppnisliðum á hvaða ummál er ásættanlegt og verða McLaren og Mercedes að breyta bílum sínum fyrir næsta kappakstur sem er í Ástralíu um aðra helgi.

Yfirmaður McLaren hefur sagt að götin á McLaren bílunum séu í sömu stærð

og götin á meistarabíl Brawn á síðasta ári. En FIA vill breytingar engu að

síður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×