Vill fá launin sín 21. október 2010 06:00 Fær ekki laun Adrien Brody var svikinn af ítölskum framleiðendum um laun upp á þrjár milljónir dala.
Óskarsverðlaunahafinn Adrien Brody stendur nú í miklu stappi við ítalska kvikmyndaframleiðendur og reynir að fá lögbann á hryllingsmyndina Giallo. Leikstjóri myndarinnar er Dario Argento, heimsfrægur í hryllingsmyndageiranum, og hafði Brody lengi dreymt um að vinna með honum. Tækifærið kom með Giallo en Brody hefur hins vegar enn ekki fengið greitt fyrir leik sinn. Samkvæmt vefsíðu Empire virðist myndin sjálf vera mesti hryllingurinn því hún þykir skelfileg og hefur verið slátrað af gagnrýnendum, var meðal annars send beint á DVD í Ameríku en þarlendir unglingar hafa löngum verið ginnkeyptir fyrir hryllingi. Brody krefst þriggja milljóna dala og vill blátt bann á dreifingu myndarinnar þar til skuldin hefur verið greidd. Brody segir að framleiðendur myndarinnar hafi ítrekað logið að honum, hann hafi til að mynda hætt á einum tímapunkti sökum þess að myndin var ekki fullfjármögnuð eins og framleiðendurnir höfðu lýst yfir. Þeir fengu Brody síðan til að koma aftur með loforðum um að dreifingarsamningar hefðu gefið vel af sér. En þau loforð virtust líka hafa verið byggð á sandi. Talið er líklegt að Brody verði að bíða ansi lengi áður en næst í skottið á framleiðendum myndarinnar.
Lífið Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira