Formúla 1

Horner: Ótrúlegt ár hjá Red Bull

Sebastian Vettel og Christain Horner hjá Red Bull á afhendingunni í gær.
Sebastian Vettel og Christain Horner hjá Red Bull á afhendingunni í gær. Mynd: Getty Images/FIA
Christian Horner framkvæmdarstjóri Red Bull tók á móti heimsmeistaratitli bílasmiða á verðlaunaafhendingu FIA í Mónakó í gærkvöldi, en Sebastian Vettel hjá Red Bull tók á móti titli ökumanna á sömu athöfn. "Þetta hefur verið erfitt en ótrúlegt ár fyrir Red Bull. Að taka á móti titli bílasmiða er fullkominn endir á frábæru keppnistímabili hjá okkur. Ég vil þakka Sebastian og Mark fyrir þeirra framlag og ásetning", sagði Horner á afhendingunni, en Mark Webber liðsfélagi Vettels varð í þriðja sæti í stigamóti ökumanna á eftir Fernando Alonso hjá Ferrari. "Seb er yngsti Formúlu 1 meistari sögunnar og átti þetta skilið. Árangur hans tekur mið af því sem hann hefur skilað á brautinni og liðið er stolt af því sem hann hefur afrekað." Vettel vann fimm mót á árinu og landaði titlinum í lokamótinu í Abu Dhabi. "Mark hefur einnig unnið ótrúlegt verk. Hann vann fjögur mót og ók stórvel. Báðir ökumenn eru ótrúlega færir ökumenn og það er sönn ánægja að hafa þá í liðinu. Ég vil þakka samstarfsfólki okkar og sérstaklega Dietrich Matesshitz fyrir hans stuðning á árinu", sagði Horner.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×