Viðskipti erlent

Alcoa segir Norðmenn þurfa samkeppnishæft orkuverð

Álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaráls, segir að norsk stjórnvöld verði að stuðla að því að orkuverð í Noregi sé samkeppnishæft á alþjóðavísu ef takast á að laða að frekari fjárfestingar í áliðnaði til landsins.

Þetta kemur fram í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni en þar segir að Alcoa sé nú að íhuga að byggja nýtt álver í norðurhluta Noregs. Alcoa rekur þegar tvö álver í Noregi en samningar um orkuverð til þeirra renna út árið 2020.

Kevin Lowry talsmaður Alcoa segir að fyrst þurfi að endurnýja núverandi orkusamninga áður en félagið taki ákvörðun um frekari fjárfestingar í Noregi.

Blaðið Dagens Næringsliv segir að Alcoa áformi að byggja nýtt álver í Noregi á sömu línum og álver þeirri austur á fjörðum starfar. Þetta hefur blaðið eftir Bernt Reitan aðstoðarforstjóra Alcoa. Reitan segir að ef af þessum áformum verður myndi Alcoa verja 1,53 milljörðum dollara eða tæplega 200 milljörðum kr. í að byggja nýtt álver.

Sem stendur er framleiðslugeta tveggja álvera Alcoa í Noregi 282 þúsund tonn á ári. Áformin um nýtt álver gera ráð fyrir framleiðslugetu upp á 350 þúsund tonn. Í frétt Bloomberg er Finnmörk nefnd sem hugsanleg staðsetning fyrir hið nýja álver.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×