Viðskipti erlent

Makrílstríð í uppsiglingu - Skotar hafa fengið nóg

Makríll.
Makríll.

Breskir sjómenn eru æfir út í íslenska og færeyska sjómenn vegna makrílveiða. Samkvæmt breska blaðinu The Guardian hafa Ísland og Færeyjar aukið makrílkvótann sinn samanlagt úr 27 þúsund tonnum upp í 215 þúsund tonn.

Bretar, aðallega Skotar, eru beinlínis æfir vegna þess sem þeir kalla víkingaveiðar og hafa kallað á aðgerðir af hálfu ESB.

Meðal annars heimta sjómenn í Skotlandi að hafnarbann verði sett á íslenska og færeyska togara.

Það hefur ekki fengist en sjómenn í Aberdeenskíri meinuðu færeyskum sjómönnum á togaranum Júpíter að landa fisk þar í bæ fyrir stuttu.

Þá hefur skoski þingmaðurinn Struan Stevenson blandað sér í baráttuna og fordæmt veiði Íslendinga og Færeyinga. Hann hefur einnig krafist þess að ESB taki á málinu.

Þá greindi RÚV frá því fyrr í mánuðinum að sjávarútvegsstjórinn, Maria Damanaki, hefði sagt í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í upphafi mánaðar að óvíst væri hvort Íslendingar og Færeyingar fái að stunda fiskveiðar innan evrópskrar lögsögu á næsta ári.

Við það tilefni sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra:

- „Nú ef það verður svo mikil óbilgirni af hálfu ESB að þeir vilji fara að reka þessi mál með þeim hætti, nú þá er það þeirra vandamál. En af okkar hálfu er bara verið að sækja þarna með eðlilegum hætti, rétt okkar sem strandríki til þess að veiða makríl. Ég treysti því að ESB-ríkin átti sig á því og virði það, virði alþjóðleg lög með þessu sambandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×