Viðskipti erlent

Fjárfestar á flótta frá Grikklandi

Skuldakreppa Grikkja hræðir alþjóðlega fjárfesta sem nú flýja umvörpum frá landinu. Aðrir krefjast hárra aukavaxta á lánum sínum til Grikkja eða kaupa á grískum ríkisskuldabréfum.

Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni en þar viðurkennir George Papaconstantinou fjármálaráðherra landsins að það sé erfitt að sannfæra alþjóðlega fjárfesta um heilsufarið hjá gríska hagkerfinu.

Grikkland er þegar með opinberan fjárlagahalla upp á um 12% af landsframleiðslu landsins. Þetta er fjórfaldur leyfilegur halli á fjárlögum samkvæmt reglum ESB. Hagfræðingar óttast nú sjálfkeyrandi niðurbráðnun gríska hagkerfisins á þann hátt að stöðugt meira fjármagn þurfi til að borga opinberar skuldir landsins sem þýði að stöðugt minna fjármagn fari í velferðarkerfið.

Þá óttast fjárfestar að Grikkir séu ekki í standi til að borga af núverandi skuldum sínum en þær nema um 120% af landsframleiðslunni. Þeir óttast að Grikklandi endi eins og Dubai sem neyddist til að setja greiðslustöðvun á sínar skuldir í desember s.l.

Sem stendur þurfa Grikkir að borga mjög háa vexti af lántökum sínum. Vaxtaálagið er orðið um 2,5 prósentustigum hærra en það er t.d. dæmis hjá Þýskalandi.

Ofan á þessa erfiðleika kemur svo reiði frá ESB um að hagtölur Grikklands hafi verið fegraðar undanfarið ár og að ekkert sé að marka opinberar tölur um stöðuna hjá gríska hagkerfinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×