Viðskipti erlent

Neftóbaksdós er talin 70 milljóna virði hjá Christie´s

Neftóbaksdós sem boðin verður upp hjá Christie´s í London á morgun er metin á rúmlega 70 milljónir kr. En þetta er ekki venjulega neftóbaksdós. Hún er smíðuð af Peter Carl Fabergé, skartgripasmiði Rússlandskeisaranna Alexander III og Nikulásar II.

Í umfjöllun um málið á börsen.dk segir að dósina hafi Fabergé smíðað eftir pöntun frá Nikulási II. Keisarinn notaði hana síðan sem jólagjöf til Turkhan Pasha í desember 1913 en Pasha var sendiherra Tyrklands við hirð Nikulás.

Neftóbaksdósin er 7,6 sinnum 5,7 sentimetrar að stærð en hana prýðir mynd af keisaranum sem umkringd er litlum demöntum. Í gegnum árin gaf Nikulás II slíkar dósir til frammámanna í Rússlandi og erlendra ráðamanna.

Það sem er sérstakt við þessa dós er að hún var aðeins smíðuð í 19 eintökum svo vitað sé. Þar með er hún sjaldgæfari en gullegg Fabergé en hann smíðaði 50 eintök af þeim. Dósin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan 1919 en mikill áhugi mun vera fyrir henni meðal Fabergé safnara víða um heiminn.

Börsen.dk lætur þess getið að danska konungsfjölskyldan eigi myndarlegt safn af verkum Fabergé en hann var að hálfu af dönskum ættum. Safn þetta komst í eigu fjölskyldunnar gegnum keisaraynjuna Dagmar sem var móðir Nikulásar II.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×