Viðskipti erlent

Joly skammar Norðmenn fyrir lítinn stuðning við Ísland

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, skammar Norðmenn í blaðagrein í dag fyrir að styðja ekki við bakið á Íslendingum í Icesave deilunni. Joly segir að Norðmenn beri sögulegar skyldur gagnvart Íslendingum og eigi að uppfylla þær.

Í grein sinn, sem birt er í Morgenbladet, fer Joly í grófum dráttum yfir Icesave deiluna og þá þróun sem orðið hefur í málinu á allra síðustu vikum. „Ég hef við fleiri tækifæri undirstrikað að kröfur og aðferðir Breta og Hollendinga í málinu eru yfirdrifnar og ólöglegar," segir Joly og bætir því við að engin þjóð afsali sér 50% af landsframleiðslu sinni af fúsum og frjálsum vilja þegar afleiðingar eru skuldsetning til fleiri áratuga.

„Það ætti að vera óhugsandi að ná þessari stöðu fram með þrýstingi frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða með notkun á hryðjuverkalögum," segir Joly.

Joly segir að Íslendingar beri hluta af ábyrgðinni í málinu. „Íslendingar neita ekki að taka á sig ábyrgðina en óska þess að gera það á skilmálum sem komi þjóðinni ekki á hnéin," segir Joly.

Fram kemur í greininni að í ljósi alls þessa sé afstaða Norðmanna til Íslands óskiljanleg. Og afstaðan sé mistök bæði landfræðilega og pólitískt. Ísland sé í lykilstöðu á Norðurslóðum þar sem það ráði yfir miklu hafsvæði og náttúruauðlindum. Landið sé því mikilvægur félagi fyrir Norðmenn.

„Við skulum lána Íslandi án skilyrða," er lokasetningin í grein Evu Joly.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×