Formúla 1

Hamilton rétt á undan á Vettel

Lewis Hamilton er efstur í stigamóti ökumanna og var fljóastur á æfingu á Monza í morgun.
Lewis Hamilton er efstur í stigamóti ökumanna og var fljóastur á æfingu á Monza í morgun. Mynd: Getty Images

Titilslagurinn í Formúlu 1 verður í algleymingi í dag, þegar ökumenn takast á í tímatökum á Monza brautinni á Ítalíu. Keppendur óku á lokaæfingu keppnisliða í morgun og náði Lewis Hamiltonm á McLaren besta tíma, en varð aðeins 47/1000 á undan Sebastian Vettel á Red Bull.

Fernando Alonso náði þriðja besta tíma á Ferrari og Felipe Massa varð fjórði á samskonar bíl, en Jenson Button fimmti.

Mark Webber lenti í vandræðum í brautinni þegar bíll hans stöðvaðist vegna bilunnar og hann gat ekki ekið lokasprettinn. Hann lenti einnig í vandræðum í gær, en náði þrátt fyrir allt sjöunda besta tíma í morgun.

Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.45 í opinni dagskrá.

Tímarnir í morgun:

1. Hamilton McLaren-Mercedes 1:22.498 19

2. Vettel Red Bull-Renault 1:22.545 + 0.047 21

3. Alonso Ferrari 1:22.644 + 0.146 15

4. Massa Ferrari 1:22.648 + 0.150 16

5. Button McLaren-Mercedes 1:22.724 + 0.226 19

6. Rosberg Mercedes 1:22.946 + 0.448 17

7. Webber Red Bull-Renault 1:23.082 + 0.584 9

8. Hulkenberg Williams-Cosworth 1:23.129 + 0.631 18

9. Kubica Renault 1:23.209 + 0.711 20

10. Sutil Force India-Mercedes 1:23.303 + 0.805 19

11. Barrichello Williams-Cosworth 1:23.450 + 0.952 19

12. Buemi Toro Rosso-Ferrari 1:23.673 + 1.175 20

13. Schumacher Mercedes 1:23.896 + 1.398 21

14. Kobayashi Sauber-Ferrari 1:23.908 + 1.410 24

15. Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1:23.909 + 1.411 17

16. Petrov Renault 1:23.967 + 1.469 19

17. de la Rosa Sauber-Ferrari 1:24.191 + 1.693 19

18. Liuzzi Force India-Mercedes 1:24.439 + 1.941 15

19. Trulli Lotus-Cosworth 1:25.788 + 3.290 14

20. Kovalainen Lotus-Cosworth 1:25.925 + 3.427 16

21. Glock Virgin-Cosworth 1:26.434 + 3.936 18

22. di Grassi Virgin-Cosworth 1:26.682 + 4.184 19

23. Senna HRT-Cosworth 1:27.471 + 4.973 18

24. Yamamoto HRT-Cosworth 1:28.730 + 6.232 14






Fleiri fréttir

Sjá meira


×