Viðskipti erlent

Danskir bankar gætu tapað 1.400 milljörðum á landbúnaði

Nýir útreikningar sýnar að danskir bankar gætu tapað allt að 60 milljörðum danskra kr. eða rúmlega 1.400 milljörðum kr. á landbúnaðargeira landsins.

Það eru bændasamtök Danmerkur (Landboforeningen) sem hafa reiknað þessa upphæð út frá gögnum hjá Seðlabanka Danmerkur. „Þetta gæti látið síðustu bankakreppu líta út eins og barnagælur," segir Henrik Danielsen forstjóri Patriotisk Selskap í samtali við Berlingske Tidende.

Finn Östrup prófessor við Copenhagen Business School er sammála Danielsen. „Þessir útreikningar eru ekki óraunhæfir. Við erum að ræða um tifandi tímasprengju undir bankakerfinu," segir Östrup og bætir því við að bráðnauðsynlegt sé að greina skuldakreppu landbúnaðarins og hvernig hægt sé að ráða við hana.

Danskur landbúnaður er mjög skuldsettur en mjög margir bændur og framleiðslueiningar í dönskum landbúnaði tóku mikið af lánum í góðærinu sem ríkti áður en fjármálakreppan skall á. Stór hluti þessara skulda er í erlendum gjaldeyri einkum svissneskum frönkum. Danska krónan hefur svo fallið um mörg prósent gagnvart frankanum sem léttir ekki á stöðunni.

Finn Östrup segir að danskir bankar séu búnir að mála sig út í horn. „Þetta er ekki bara orðin spurning um skuldir landbúnaðarins í held upp á 350 milljarða (danskra) króna," segir Östrup. „Þetta er spurning um að landbúnaðarkreppan gæti orðið verri en fasteignakreppan."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×