Viðskipti erlent

Snekkjum sökkt eða þeim siglt í strand í kreppunni

Leiðindasjón blasir nú víða við í höfnum Bandaríkjanna og meðfram ströndum landsins, einkum við Flórída. Það eru snekkjur sem sökkt hefur verið eða þeim siglt í strand af örvæntingarfullum eigendum sem eiga ekki lengur fyrir afborgunum eða rándýrum leguplássum.

Í nýlegri umfjöllun um málið á börsen.dk segir að fjármálakreppan skilji nú eftir haug af löskuðum eða illa förnum snekkjum og skútum í kjölfari sínu. Auðkennisnúmer séu skafin af, nöfnin á skrokkunum fölsuð og síðan er botnlokinn opnaður.

Afleiðingar þessa eru oft að innsiglingar í hafnir stíflast og strandlengjur eru mengaðar af skipsskrokkum sem hið opinbera neyðist síðan til að hreinsa upp. Fleiri ríki í Bandaríkjunum vinna nú að nýrri löggjöf sem gerir þeim kleyft að sækja eigendur viðkomandi skipa til saka fyrir þetta athæfi.

„Hafið undan ströndum okkar er að breytast í ruslahaug," segir Paul Oullette hjá Fish and Wildlife stofnuninni í Flórída. Paul telur jafnframt að vandamálið fari vaxandi. Hann bendir á að við upphaf síðasta árs mátti telja yfirgefnar skútur/snekkjur á fingrum annarrar handar. Síðasta haust var fjöldinn kominn í 118 slík skip.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×