Viðskipti erlent

Landstjóri Guernsey á leið til Íslands að ræða Landsbankamál

Lyndon Trott landstjóri eyjarinnar Guernsey er væntanlegur til Íslands í næstu viku til að ræða við stjórnvöld um málefni innistæðueigenda í útibúi Landsbankans á eyjunni.

Þetta kemur fram í frétt á BBC en Trott hefur legið undir mikilli gagnrýni á Guernsey fyrir aðgerðarleysi í Landsbankamálinu þar. Innistæðueigendur áttu um 3,5 milljónir punda inni á reikningum Landsbankans þegar hann hrundi s.l. haust. Trott átti fund með innistæðueigendum í október s.l. og lofaði þá að hjálpa þeim.

Nú er komið í ljós að stjórnvöld á Guernsey hafa ekki haldið neina fundi með breska dómsmálaráðuneytinu um málið. Aðgerðahópur innistæðueigenda Landsbankans á eyjunni (LGDAG) er ekki sáttur við þróun mála.

„Okkur hefur margoft verið sagt að stöðugir fundir hafi verið í gangi við fjármálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið," segir Nick Dickens talsmaður LGDAG. „Lykilatriðið er að dómsmálaráðuneytið á að verja Guernsey gegn utanaðkomandi ógnunum og íslenska bankahrunið er utanaðkomandi ógnun."

Dickens bendir á að Guernsey sé eina lögsagan á Bretlandseyjyum sem ekki hafi komið innistæðueigendum í íslensku bönkunum til hjálpar. Hann nefnir sem dæmi að á eyjunni Mön hafi stjórnvöld lagt fram 193 milljónir punda til innistæðueigenda þar.

Trott segir að hann muni í næstu viku fara til Íslands ásamt hópi af háttsettum embættismönnum eyjarinnar. „Við munum ræða við íslensk stjórnvöld um lausn á þessu máli," segir hann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×