Stabæk ætlar að útbúa japanska heimasíðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2009 09:45 Daigo Kobayashi í leik með japanska landsliðinu. Mynd/GettyImages
Nýja tían hjá norsku meisturunum í Stabæk sló í gegn í fyrsta leik og nú snýst allt hjá félaginu um að bregðast við gríðarlegum áhuga á félaginu frá Japan. Ástæðan er hinn 26 ára Daigo Kobayashi. Japaninn Daigo Kobayashi tók við tíunni af Veigari Páli Gunnarssyni og hlutverki Alanzinho á miðjunni. Hann átti stórleik í fyrsta leik þegar Stabæk vann 3-1 sigur á Vålerenga í Meistarakeppninni. Kobayashi skoraði þá glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og átti einnig þátt í öðru marki í flottum sigri. „Ég veit að Alanzinho var frábær og að margir stuðningsmenn sakna hans mikið. Ég vonast til að ég geti skilað góðum til liðsins með því að leggja mig 120 prósent fram. Vonandi koma allir áfram á leikina okkar og gleðjast yfir því liði sem við erum með í dag," sagði Kobayashi eftir fyrsta leikinn. Þegar forráðamenn Stabæk fóru að taka eftir miklum fjölda heimsókna á heimasíðu sína frá Japan þá voru þeir fljótir til og ætla nú að útbúa japanska heimasíðu fyrir Stabæk. Í frétt á heimasíðu norska Dagblaðsins er talað um að margir norskir tónlistarmenn hafi verið „Big in Japan" en nú hafa hlutirnir snúist við og nú er hinn japanski Kobayashi „Big in Norway".
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Myndasyrpa: Glódís og forsetinn í hláturskasti á hófinu í Hörpu Sport Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Enski boltinn Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Handbolti Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga Sport Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Enski boltinn Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni Fótbolti Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Enski boltinn Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Damir ekki lengi að opna markareikninginn í Asíu Orri áfram í bikarnum en af velli í hálfleik Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Telur sig hafa fengið hálfgert loforð frá ÍSÍ um fjármuni „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Olmo og Victor í algjörri óvissu eftir að beiðni Barcelona var hafnað Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til KA fær lykilmann úr Eyjum Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Sjá meira