Viðskipti erlent

Enron hneykslið verður söngleikur á Broadway

Næsta vor munu bandarískir leikhúsgestir geta endurupplifað Enron hneykslið, að þessu sinni með söng og dans. Ætlunin er að sýna söngleikinn Enron á Broadway í New York.

Samkvæmt frásögn á CNN um málið hefur lítið leikhús í London sýnt söngleikinn um Enron frá því í júlí s.l. Viðtökurnar hafa verið það góðar að flytja á hann til Broadway.

Það er hinn 28 ára gamla Lucy Prebble sem samið hefur söngleikinn en leikstjórinn er Rupert Goold. Samkvæmt CNN er Enron sagan einnig á leið á hvíta tjaldið en Columbia Pictures hefur keypt réttinn til að kvikmynda söguna. Ekki er ljóst hver muni fara með hlutverk aðalskúrksins Jeff Skilling.

Enron var sjöunda stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna þegar það hrundi árið 2001. Eftir gjaldþrotið varð ljóst að efnahagur félagsins byggðir á tilbúnum tölum og að forysta þess einkenndist af lygum og svikum. Þetta kostaði forstjórann Jeff Skilling 24 ára fangelsisdóm. Hinn höfðupaurinn, stjórnarformaðurinn Kenneth Lay, lést áður en hann kom fyrir dómstóla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×