Formúla 1

BMW Formúlu 1liðið selt einkaaðila

Töffarinn góðhjartaði Peter Sauber er 65 ára gamall.
Töffarinn góðhjartaði Peter Sauber er 65 ára gamall. Mynd: Getty Images

Bílarisinn BMW hefur selt Peter Sauber frá Sviss allan búnað Formúlu 1 liðsins til notkunnar í Formúlu 1. BMW álkvað að hætta í Formúlu 1 lok ársins og þetta er niðurstaðan.

Sauber seldi fyrir fjórum árum meirihlutann í liði sem hét Sauber og hélt eftir 20% í nýstofnuðu liði BMW. Hann var mjög svekktur með ákvörðun BMW að hætta í Formúlu 1 og ákvað að kaupa allt aftur tilbaka, trúlega á mun lægra verði en hann seldi.

Sauber hefur samið við Ferrari um að fyrirtækið útvegi honum vélar á næsta ári, en hann bíður þess hvort FIA gefur liði hans leyfi til að keppa. Þá verða þrettán lið á ráslínunni. Allar líkur benda til þess að af því verði, en ef ekki þá ganga kaupin tilbaka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×