Viðskipti erlent

Kolsvart ár í bókum Nomura

 Það er engu líkar en Kenichi Watanabe, forstjóri Nomura Holdings, lýsi hér hversu mikið og stórt tap fyrirtækisins hafi verið í fyrra. Fréttablaðið/AFP
Það er engu líkar en Kenichi Watanabe, forstjóri Nomura Holdings, lýsi hér hversu mikið og stórt tap fyrirtækisins hafi verið í fyrra. Fréttablaðið/AFP

Nomura Holdings, umsvifamesta fjármálafyrirtæki Japans, tapaði 709,4 milljörðum jena, jafnvirði 950 milljarða íslenskra króna, í fyrra.

Hrun á fjármálamörkuðum og kaup á þrotabúi bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers í Asíu, Evrópu og Mið-Austurlöndum skömmu eftir þrot bankans í september brenndu gat í bækur fyrirtækisins.

Hrun íslensku bankanna kemur sömuleiðis við sögu í þessu svarta ári Nomura en fyrirtækið sat á svokölluðum samúræjabréfum, skuldabréfum sem þeir gáfu út í jenum. - jab








Fleiri fréttir

Sjá meira


×