Viðskipti erlent

Volvo situr upp með 25.000 óselda vörubíla

Yfir 25.000 vörubílar frá Volvo standa nú óseldir á geymslustöðum víða um heiminn og hlaða upp kostnaði fyrir bílaframleiðandann.

Að sögn vefsíðunnar e24.no er þetta mesti fjöldi óseldra vörubíla í sögu fyrirtækisins. Volvo tapaði um 320 milljörðum kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins og ein höfuðástæðan fyrir því tapi var hinni gífurlegi geymslukostnaður sem féll á fyrirtækið vegna óseldra bíla.

Mårten Wikfoss upplýsingafulltrúi Volvo segir að það sé forgangsverkefni hjá fyrirtækinu að minnka þessar gífurlegu birgðir af óseldum bílum og ná þannig kostnaðinum niður. „Þetta verður að gerast fljótt því að því lengur sem vörubílarnir standa ónotaðir því minna verð fæst fyrir þá," segir Wikfoss.

Hinsvegar mun Volvo ekki ætla að fara þá leið að setja bílana á útsölu því slíkt geti eyðilagt verðlagningu á bílnum í framtíðinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×