Viðskipti erlent

Eiturlyfjafé bjargaði bönkum í kreppunni

Fjármagn sem var afrakstur eiturlyfjasölu bjargaði nokkrum bönkum frá gjaldþrotum í fjármálakreppunni. Þetta segir Antoino Maria Costa forstöðumaður eiturlyfja og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Margir vefmiðlar hafa greint frá þessu yfir helgina.

Costa segir að hann hafi upplýsingar um að fjármagn frá skipulögðum glæpasamtökum hafi oft verið það eina sem viðkomandi bönkum stóð til boða á seinni helmingi síðasta árs þegar millibankamarkaðir lokuðust alveg. Upphæðirnar sem þessir bankar fengu í auknu lausafé nemi hundruðum milljörðum dollara.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Costa segist hafa undir höndum fóru 352 milljarðar dollara af eiturlyfjafé í gegnum þessa banka og var þetta fé í raun hvítþvegið með þessum hætti.

Costa segist hafa orðið fyrst var við þessa fjármagnsflutning fyrir 18 mánuðum síðan en hann vill ekki gefa upp um hvaða banka sé að ræða né í hvaða löndum þeir starfa.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×