Viðskipti erlent

Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings á lista yfir grunaða

Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings, sem nú hefur umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa, er sagður á lista yfir grunaða í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Al-Thanis á hlut í Kaupþingi.

Bresku blöðin Guardian og Observer greina frá því í dag að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sé með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósenta hlut í bankanum.

Fréttastofa hefur áður greint frá því að þeir Sigurður, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans og Ólafur Ólafsson, einn stærsti hluthafinn, hafi réttarstöðu grunaðra manna í rannsókninni.

Guardian fjallar einnig um Hreiðar Má Sigurðsson og Ólaf Ólafsson og segir þá liggja undir grun í málinu.

Þá segir í blaðinu að lögmaðurinn Telma Halldórsdóttir, sem sat í stjórn Q Finance Holding, félags Al-Thani sem hélt utan um hlut hans í Kaupþingi og Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi starfsmaður hjá lánadeild Kaupþings sem nú hefur umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa séu á listanum yfir grunaða.

Það sé frekar neyðarlegt fyrir skilanefnd bankans þótt stöðu Halldórs Bjarka gæti seinna verið breytt í vitni. Fréttastofa reyndi að ná tali af formanni skilanefndar Kaupþings í morgun, án árangurs.

Grunur leikur á að kaup sjeiksins frá Katar á stórum hlut í Kaupþingi hafi verið sýndarviðskipti, en þau voru tilkynnt í lok september á síðasta ári, rétt fyrir bankahrun. Fjármálaeftirlitið og sérstakur saksóknari hafa mörg mál er tengjast markaðsmisnotkun og sýndarviðskiptum til rannsóknar í kjölfar bankahrunsins.

Breska sunnudagsblaðið Observer segir, að Sigurður Einarsson, sem búi í einu flottasta hverfi London, sé fyrsti stjórnandi banka í Evrópu sem fær slíka stöðu. Það er reyndar ekki alveg rétt, því Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á Imon-málinu svokallaða.


Tengdar fréttir

Sigurður Einarsson með stöðu grunaðs manns

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er með réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Katarbúans Al-Thani á rúmlega fimm prósent hlut í bankanum. Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×