Formúla 1

Listi Formúlu 1 ökumanna 2010 þéttist

Þjóðverjinn Adrian Sutil og Ítalinn Viantonio Liuzzi voru í dag tilkynntir sem ökumenn Force India liðsins indverska. Smám saman er að taka á sig listi ökumanna fyrir næsta ár, en þó eru mörg sæti hjá keppnisliðum enn á reiki.

Fjögur ný lið verða á næsta ári og 26 ökumenn í stað 20 í ár og því eru fleiri tækifæri í gangi en ella. Stóru liðin eins og Ferrari og McLaren hafa þegar ráððið sína ökumenn, en mörg önnur lið hafa aðeins tilkynnt einn af tveimur.

Mercedes hefur ráðið Nico Rosberg, en bíður hvort Michael Schumacher samykkir að keppa með liðinu samkvæmt fregnum, en Nick Heidfeld er einnig talinn eiga möguleika.

Bruno Senna hefur verið ráðinn til Campos frá Spáni, Robert Kubica til Renault, Timo Glock til Manor, Rubens Barrichello og Nico Hulkenberg til Williams og síðast en ekki síst Fernando Alonso til Ferrari.

Níu sæti eru enn laus í Formúlu 1 og spurning hvaða kappar hreppa hnossið og hverjir sita eftir með sárt ennið.

Sjá ökumannslistann 2010






Fleiri fréttir

Sjá meira


×