Viðskipti erlent

Opinber rannsókn á Kaupþingi hafin í Bretlandi

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, hefur sent frá sér tilkynningu um að opinber rannsókn sé hafin á starfsemi Kaupþings í Bretlandi. Rannsóknin muni m.a. beinast að gjörðum Kaupþings til að fá Breta til að leggja sparifé sitt inn á Edge-reikninga bankans í Bretlandi.

„Rannsóknin á að leiða í ljós hvort misvísandi eða falskar upplýsingar hafi komið frá bankanum til breskra fjárfesta," segir í tilkynningunni. „Annar hluti rannsóknarinnar beinist að því hvort ákvarðanir hafi verið teknar sem leiddu til þess að umfangsmiklum verðmætum var skotið undan í bankanum vikurnar og dagana fyrir hrun hans."

Talsmaður Serious Fraud Office segir í tilkynningunni að um flókna rannsókn verði að ræða þar sem fleiri en ein lögsaga komi við sögu. „Við höfum unnið náið með skrifstofu sérstaks saksóknara, á Íslandi, til að tryggja að rannsóknin verði eins nákvæm og umfangsmikil og hægt er," segir talsmaðurinn og bætir því við að samvinnan sé einnig til þess að koma í veg fyrir tvíverknaði í rannsókninni.

Þá segir að Serious Fraud Office áætli að yfir 30.000 breskir einstaklingar, fyrirtæki og félög hafi fjárfest á Edge reikningum Kaupþings. Allir sem vilji geti komið upplýsingum til Serious Fraud Office og bent er á öruggann tölvupóst í því sambandi. Póstfangið er: https://www.surveymonkey.com/s/9LR8TWX








Fleiri fréttir

Sjá meira


×