Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á gulli slær nýtt met

Heimsmarkaðsverð á gulli sló nýtt met í dag þegar únsan fór í 1038 dollara á markaðinum í New York. Fyrra verðmet var sett í mars í fyrra þegar únsan náði 1033,90 dollurum.

 

Í fyrra var metið slegið í kjölfar þess að Bear Stearns lenti í fjárhagsvandræðum og gaf þar með sterkar vísbendingar um í hvert stefndi seinna á árinu. Í dag er það lækkandi gengi dollarans sem veldur verðhækkunum á gullinu.

 

Í frétt um málið á börsen.dk segir að dollarinn hafi fallið úr 1,465 og í 1,472 gagnvart evrunni frá því í gærdag. Ástæða þessa voru fregnir um að olíuframleiðsluríki auk Rússlands, Kína, Japans og Frakklands hefðu haldið leynilega fundi um að dollarinn yrði ekki áfram sú mynt sem olíuverðið er mælt með.

 

James Steel sérfræðingur hjá HSBC í málmviðskiptum segir að í hvert sinn sem vægi dollarans sem heimsmyntar hafi verið dregið í efa í ár hafi verð á gulli rokið upp. Fari svo að dollarinn verði áfram í vörn gegn slíkum vangaveltum megi búast við háu gullverði.

 

Steel bendir jafnframt á að gullið hafi haldið þessu háa verði sínu í dag þrátt fyrir að framangreindar þjóðir hafi borið til baka fregnirnar um leynifundinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×