Fótbolti

FCK danskur meistari

Stefán Gíslason og félagar misstu af titlinum í dag
Stefán Gíslason og félagar misstu af titlinum í dag Mynd/Heimasíða Bröndby

FCK tryggði sér í dag danska meistaratitilinn í knattspyrnu með 1-0 útisigri á Esbjerg.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Kári Árnason voru allan tímann á varamannabekk Esbjerg og komu ekki við sögu í leiknum.

Á sama tíma tapaði Bröndby 1-0 fyrir AGF og því hefur Kaupmannahafnarliðið fimm stiga forystu á toppnum þegar ein umferð er eftir. Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi Bröndby í dag og tók út leikbann.

Sölvi Geir Ottesen var á sínum stað í byrjunarliði SönderjyskE sem gerði 1-1 jafntefli við AaB á útivelli.

Úrslit og staða í dönsku úrvalsdeildinni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×